Nýtt.is
Hjálp

Spurt og svarað

Hvernig Nýtt vinnur og af hverju hlutirnir líta út eins og þeir gera.

Hvaðan koma fréttirnar?

Úr opinberum RSS-straumum 29 íslenskra miðla. Þú sérð allan listann á síðunni Miðlar.

Hversu oft uppfærist forsíðan?

Fréttalistinn er endurbyggður á um mínútu fresti. Ef straumur miðils svarar ekki höldum við síðustu útgáfu í stað þess að sýna tóma síðu.

Af hverju eru sumar fréttir án myndar?

Flestir íslenskir RSS-straumar innihalda enga mynd, svo við sækjum myndina af fréttasíðunni sjálfri. Það gengur í nær öllum tilvikum, en einstaka miðill hindrar slíkan aðgang. Þá sýnum við merktan flöt í stað þess að setja ótengda mynd við fyrirsögnina.

Af hverju opnast fréttin á öðrum vef?

Af því að fréttin er þeirra. Við birtum fyrirsögn og útdrátt og vísum svo á upprunann.

Hvaðan koma fasteignirnar?

Af vefjum íslenskra fasteignasala. Við sækjum skráningarnar sjálfvirkt og birtum þær hér með tengli á upprunalegu skráninguna. Verð, stærð, herbergjafjöldi og myndir koma frá fasteignasölunni sjálfri. Við reiknum ekkert af þessu upp á eigin spýtur.

Þess vegna á alltaf við að skoða skráninguna hjá fasteignasölunni áður en þú byggir ákvörðun á tölu sem þú sérð hér.

Hvað þýðir það að eign sé tekin úr sölu?

Að skráningin er ekki lengur á vef fasteignasölunnar. Við fjarlægjum hana ekki heldur merkjum hana sem slíka, því það er sjálft upplýsingar: eign sem hvarf úr sölu segir þér annað en eign sem aldrei var til.

Af hverju sé ég skjaldarmerki sveitarfélaga?

Til að sýna hvaða sveitarfélagi hvert svæði tilheyrir, því bæjarnafn og sveitarfélag eru ekki það sama: Selfoss er í Árborg og Þorlákshöfn í Ölfusi. Merkin eru eign sveitarfélaganna sjálfra og eru hér notuð til að vísa á þau, ekki til að gefa í skyn samstarf við þau.

Meira um Nýtt

  • Um Nýtt
  • Kvikar
  • Persónuverndarstefna
  • Skilmálar
  • Hafðu samband
  • Auglýsingar
Nýtt

Nýjustu fréttirnar af öllum helstu fréttavefum á Íslandi á einum stað.

Flokkar

  • Viðskipti
  • Íþróttir
  • Lífið
  • Menning
  • Tækni
  • Veður

Vefurinn

  • Um Nýtt
  • Hafðu samband
  • Auglýsingar
  • Skilmálar
  • Spurt og svarað
  • Persónuvernd
  • Kvikar

Fáðu nýjasta fréttastrauminn

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

© 2026 NÝTT. Allur réttur áskilinn.Fréttir eru sóttar frá viðkomandi miðlum og hlekkjað er á upprunann.
  • Fréttir
  • Fasteignir
  • Hlaða
  • Fótbolti